Privacy policy

PERSÓNUVERNDARSTEFNA
Í þessu skjali (hér nefndir persónuverndarskilmálarnir) er að finna upplýsingar um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram þegar þú kaupir vörur í vefversluninni Lífstíll og Vellíðan. Vefverslunin er rekin af Cistron ehf kt. 600602-4460. Cistron ehf er ábyrgðaraðili allrar vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við vefverslunina.

Persónuupplýsingar
Í persónuverndarskilmálunum er fjallað um hvaða persónuupplýsingar við vinnum með í vefversluninni, tilgang vinnslunnar og heimildir fyrir henni, miðlun persónuupplýsinga og geymslutíma þeirra, auk ýmissa annarra atriða um þá vinnslu persónuupplýsinga sem fram fer í tengslum við verslunina.

Tegundir persónuupplýsinga, tilgangur vinnslunnar og heimildir fyrir henniTil þess að við getum afgreitt þig í vefversluninni og veitt þér þá þjónustu sem boðið er upp á eða þú samþykkir sérstaklega að þiggja þurfum við að vinna með margs konar persónuupplýsingar, í ýmiss konar tilgangi og á grundvelli ólíkra heimilda. Þetta eru þær tegundir persónuupplýsinga sem við öflum beint frá þér en við öflum engra upplýsinga um þig annars staðar frá:

Tengiliðaupplýsingar, 
Nafn, heimilisfang og netfang, Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til að hægt sé að tryggja að ef þú óskar eftir að við sendum þér vörur þá sendum við þær á réttan stað, til að gefa okkur kost á að eiga í samskiptum um vörukaupin og til að tryggja að réttur viðskiptavinur sé skráður sem kaupandi, svo sem vegna reikningagerðar og ef kemur til vöruskila. Þá vinnum við einnig með þær vegna beinnar markaðssetningar ef þú hefur óskað eftir að fá almenn tilboð frá okkur eða tilboð sem eru sniðin að þér. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin, sem og vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur, einkum vegna laga um neytendakaup, virðisaukaskatt og bókhald, auk þess að vera nauðsynleg til að veita þér framangreinda tilboðsþjónustu hafir þú óskað eftir að fá að njóta hennar. Við leggjum okkur fram um að lágmarka þær persónuupplýsingar sem við vinnum með um þig og af þeim sökum vinnum við ekki með upplýsingar um kennitölu þína.

Greiðsluupplýsingar 
Við vistum aldrei greiðslukortanúmer þitt heldur gefum þér, þegar kemur að því að greiða fyrir vörur og ef þú notar til þess greiðslukort, samband við færsluhirði þar sem þú slærð sjálf inn greiðslukortanúmer þitt og aðrar upplýsingar um það greiðslukort sem þú notar. Í staðinn fáum við frá færsluhirðinum staðfestingu á að skuldfærsla á greiðslukortið hafi tekist og þær upplýsingar vinnum við með í bókhaldslegum tilgangi. Því er okkur nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin og vegna lagaskyldu okkar, einkum samkvæmt lögum um bókhald.

Upplýsingar um vörukaup 
Þ.e. hvaða vörur þú keyptir, hvenær og fyrir hvaða upphæð: Við vinnum með þessar upplýsingar, eins og með tengiliðaupplýsingarnar, sbr. hér að framan, í þeim tilgangi að geta selt og sent þér viðkomandi vörur og til að geta staðið við lagaskyldur okkar, svo sem varðandi vöruskil og endurgreiðslur. Þá bjóðum við þér upp á að við berum saman upplýsingar um þín vörukaup við aðra sölu á vörum í versluninni til að senda þér auglýsingar og gera þér tilboð sem sniðin eru að þér. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns og okkar, vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur og á grundvelli samþykkis, ef þú veitir okkur slíkt.

Ópersónugreinanlega

r upplýsingar
Auk þess að vinna með persónuupplýsingar notum við margs konar ópersónugreinanlegar upplýsingar til að starfrækja verslunina, t.d. tölfræðilegar upplýsingar um hvenær viðskiptavinir okkar versla hvaða vörur o.s.frv. Engar slíkar upplýsingar er hægt að rekja til tiltekins viðskiptavinar heldur er einungis um að ræða ópersónugreinanlegar upplýsingar um hópa viðskiptavina.

Miðlun persónuupplýsinga
Þeim persónuupplýsingum um þig sem við vinnum með vegna kortaútgáfunnar miðlum við ekki til þriðja aðila, svo sem til utanaðkomandi vinnsluaðila til dæmis til geymslu eða bókhaldsþjónustu, nema í eftirtöldum tilvikum:

Það upplýsingakerfi sem við notum til að reka verslunina er rekið af vinnsluaðila okkar og hýst, ásamt öllum upplýsingum, innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Hins vegar er vakin sérstök athygli á því að þeir undirvinnsluaðilar sem veita okkur notendaþjónustu varðandi rekstur kerfisins eru sumir hverjir staðsettir fyrir utan EES en geta fengið aðgang að kerfinu til að aðstoða okkur varðandi atriði sem koma upp við rekstur kerfisins. Þessu fylgir mögulega áhætta vegna þess að þessir undirvinnsluaðilar kunna að vera staðsettir í ríkjum, einkum Bandaríkjunum, þar sem ekki liggur fyrir ákvörðun Evrópusambandsins um að vernd persónuupplýsinga sé fullnægjandi og viðeigandi verndarráðstafanir hafa ekki verið gerðar til að tryggja þær og vinnslu þeirra. Þess vegna er sérstaklega óskað eftir ótvíræðu samþykki þínu, sbr. ákvæði laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nú a)-lið 1. mgr. 49. gr. laga nr. 90/2018, fyrir þeirri lýsingu á vinnslu persónuupplýsinga sem kemur fram í persónuverndarskilmálunum þessum, ef þú vilt eiga viðskipti við verslunina.
Bókhaldsgögn eru afhent innlendum endurskoðendum okkar eftir því sem þeir kunna að óska eftir lögum samkvæmt.
Við áskiljum okkur rétt til að hlíta fyrirmælum þar til bærra íslenskra dómstóla og eftirlitsstofnana um afhendingu gagna, þar á meðal þeirra sem kunna að innihalda persónuupplýsingar.

Geymslutími persónuupplýsinga
Geymslutími þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum með ræðst af þeim tilgangi sem þeirra er aflað í og þeirri heimild sem vinnslan byggist á. Þannig geymum við tengiliðaupplýsingar þínar ásamt upplýsingum um samþykki fyrir beinni markaðssetningu á meðan þú ert skráður notandi verslunarinnar. Rétt er að ítreka að notendur geta afskráð sig hvenær sem er og lokað aðgangi sínum fyrirvaralaust.
Við vinnum með upplýsingar um vörukaup þín ásamt greiðsluupplýsingum í þann tíma sem okkur er skylt vegna ákvæða í lögum um bókhald í lögum, þ.e. nú í minnst 7 ár en ekki lengur en í 10 ár.

Réttindi þín
Þar sem við vinnum, eins og kemur fram hér að framan, með persónuupplýsingar um þig þá hefur þú margs kyns réttindi sem mikilvægt er að þú fáir upplýsingar um:
Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum þínum hjá okkur, láta okkur leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta okkur eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær. Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd, sbr. nú 17. og 20. gr. laga nr. 90/2018, Þá átt þú samkvæmt síðarnefndu lagagreininni rétt á að flytja eigin gögn eða að við takmörkum vinnslu persónuupplýsinga um þig, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Þú átt einnig rétt á að andmæla vinnslunni skv. 21. gr. laganna.
Þú getur hvenær sem er sent okkur fyrirspurn eða kvörtun vegna vinnslunnar, á netfangið info@lifsstillogvellidan.is Þá átt þú rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa hennar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík og netfang hennar er postur@personuvernd.is.

Gildandi lög og samningsvarnarþing
Um viðskiptaskilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi dómsmál um ágreining milli aðila í tengslum við þá skal það mál rekið fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.
Þessi útgáfa persónuverndarskilmálanna er frá 30.maí 2023 og gildir um alla vinnslu sem á sér stað frá og með þeim degi.