Lotus Design
Jógadýna TPE 6mm
Jógadýna TPE 6mm
Couldn't load pickup availability
JÓGADÝNA TPE
LOTUS DESIGN
Góða 6mm þykka TPE jógadýna á góðu verði. Dýnan er þægilega mjúk og tryggir trausta fótfestu. Hún hentar líka vel fyrir Pilates og mildari jóga stíla sem og fyrir hugleiðsluæfingar.
TPE efnið býður upp á mikil þægindi og inniheldur engin plastefni. Dýnan er með ísettu glerdúkneti sem gerir hana sérstaklega slitsterka og tryggir stöðugleika jafnvel við erfiðar æfinar. Yfirborðið á dýnunni er sérstaklega mjúkt en engu að síður mjög slitþolið. Mjúkt efnið fer líka vel með húðina.
Efnið í dýnunni er endurvinnanlegt og inniheldur hvorki PVC né latex.
Yfirboðið á dýnunni gerir það að verkum að sviti kemst ekki ofan í dýnuna og hún er auðveld í þrifum. Best er að þrífa dýnuna með rökum klút eða dýnuhreinsiefni. Ef þörf er á má setja hana í þvottavél á 30°C og með lítilli vindu. Dýnan má ekki fara í þurrkara.
Athugið að mjög mikill sviti eða raki getur gert yfirborðið örlítið sleipara.
AÐRAR UPPLÝSINGAR:
EFNI: TPE (Thermoplastic Elastomer Foam). Inniheldur hvorki latex né PVC.
STÆRÐ: 183 x 60 cm
ÞYKKT: 6 mm
ÞYNGD: 1,1 Kg
ÞVOTTUR: Strjúka af með rökum klút. Ef þarf má þvo á 30°C við vindu. Ekki má nota mýkingarefni eða setja dýnuna í þurrkara.
Share
