Terms of service
ALEMENNIR SKILMÁLAR
Almennt
Lífsstíll og Vellíðan er netverslun sem sérhæfir sig í vörum er lúta að heilsu og vellíðan og stuðla að lífsstíl sem bætir heilsu bæði á líkama og sál. Leitast er við að velja vörur sem eru framleiddar á eins umhverfisvænan hátt og hægt er þar sem áhersla er lögð á lífræn efni.
Afgreiðsla og afhending vöru
Pantanir í netsölu er afgreiddar og sendar út samdægurs ef pantað er fyrir kl. 13:00. Ef pantað er seinnipart dags er pöntunin tekin saman daginn eftir. Allar vörur eru afgreiddar í gegnum Górilla vöruhús og afhendar í Dropp stöðvar um allt land.
Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað
Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði: Allar upplýsingar sem kaupandi gefur upp þegar verslað er í vefverslun eða við skráningu á póstlista verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Sendingarkostnaður
Frír sendingarkostnaður á alla Dropp afhendingarstaði
Greiðslur
Kredit- eða debetkort. Greitt er um leið og kaupandi verslar vöruna. Greiðsla fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa í þegar hann pantar vöruna. Þegar kaupandi staðfestir kaup á er greiðslan skuldfærð af kortinu.
Verð
Verð á vefsíðu, í auglýsingum og tilkynningum getur breyst á fyrirvara. Öll verð eru með virðisaukaskatti og með fyrirvara um innsláttarvillur. Lífsstíll og Vellíðan áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að varan er uppseld eða af öðrum ástæðum. Starfsmaður mun upplýsa kaupanda eins fljótt og hægt er.
Skilaréttur
Skilaréttur er 14dagar frá kaupum að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð og sé í söluhæfum og upprunalegum umbúðum. Við vöruskil fær kaupandi inneignarnótu að andvirði vörukaupa eða endurgreiðslu með sama máta og keypt var. Ef greitt er með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort. Flutnings- og pósburðgjöld af endursendingum eru ekki endurgreidd. Vörur sem fengnar eru að gjöf eða keypta í gegnum gjafakort eru einungis endurgreiddar með inneignarnótu.
Ef vara reynist gölluð mun Lífsstíll og Vellíðan bjóða kaupanda nýja vöru eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á Kaupandi (einstaklingur) rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst seljanda innan 2 vikna frá því að kaupandi varð var við galla.
Endursendingarkostnaður af gallaðri vöru er endurgreiddur til kaupanda sé þess krafist. Upplýsingar um gallað vöru þurfa að berast í gengum tölvupóst til seljanda.
Ágreiningur
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.