Lovaiceland
Andlitshreinsir með Túrmerik - 50 ML
Andlitshreinsir með Túrmerik - 50 ML
Couldn't load pickup availability
TÚRMERIK ANDLITSHREINSIR
LOVAICELAND
50 ML
Silkimjúkur Túrmerik Balm sem bráðnar við snertingu húðarinnar. Hreinsirinn býr yfir bólgueyðandi eiginleikum túrmeriks sem veitir húðinni raka og ljóma.
Hreinsirinn vinnur gegn bólum og ummerkjum öldrunar, er græðandi og róar þurra húð ásamt því að vinna gegn exem og psoriasis.
Innihaldsefni:
Túrmerik: Bólgueyðandi, dregur úr roða, bólgu, ertingu í húðinni, bólum, exemi og psoriasis. Ríkt af andoxunarefnum sem berjast gegn öldrunareinkennum. Hjálpar til við að gera við skemmda húð, stuðlar að kollagenmyndun, er bakteríudrepandi og jafnar út húðlit ásamt því að auka náttúrulegan ljóma húðarinnar.
Engifer-lilju þykkni: Stuðlar að mýkri og sléttari húð. Bakteríudrepandi eiginleikar sem hreinsa og vinna gegn bólum.
Cetyl Ethylhexanoate: olía sem hjálpar til við að mýkja og slétta húðina.
Hedychium olía ((Hvítur engiferliljuþykkni)): unnin úr White Ginger Lily plöntunni og hefur róandi eiginleika.
Arganolía: Unnin úr kjarna argantrésins sem á rætur sínar að rekja til Marokkó. Arganolía er rík af fitusýrum og E-vítamíni.
Cucuma Longa rótarolía (túrmerik): Uninn úr túrmerikplöntunni. Inniheldur efnasambönd eins og curcumin sem er þekkt fyrir andoxunar- og bólgueyðandi eiginleika.
Zingiber Officinale rótarolía (Engifer): Þekkt að hafa róandi áhrif á húðina. Hefur einnig góða áhrift á blóðrásina og sefar ertingu.
Ólífuolía: Uninn úr ólífum og er rík af andoxunarefnum og fitusýrum. Rakagefandi eiginleikar hennar geta hjálpað til við að bæta mýkt húðarinnar.
Tocopheryl Acetate: Er form E-vítamíns, sem er öflugt andoxunarefni. Nærir og verndar húðina gegn sindurefnum og umhverfisskemmdum.
Plyglyceryl-2 Caprate: Er fitusýra sem finnst í kókosolíu og hjálpar innihaldsefnum að blandast saman og búa til slétta áferð.
Ethylhexyglycerin: Efnasamband notað sem rotvarnarefni og húðnæring. Það hjálpar til við að auka virkni annarra innihaldsefna og hefur rakagefandi eiginleika.
Share
